Tíminn flýgur áframJenný Svansdóttir

iss hvað tíminn líður eitthvað rosalega hratt núna, mér finnst vikan varla vera byrjuð þegar helgin byrjar aftur..
Enn núna er maður loksins kominn á gott skrið hérna, enginn heimþrá lengur og maður er algjörlega að njóta þess að vera hérna, ég elska Svissið mitt meira og meira og væri allveg til í það að vera hérna þangað til að skólinn byrjar bara í September..
Enn ég á enn allveg eftir góðan tíma hérna úti og ég er aðeins að reyna að skipuleggja páskafríjið mitt núna, ég fór með Allison vinkonu minni í gær og við keyptum okkur miða til München (þriðja stærsta borgin í Þýskalandi), Annars er það bara málið að vera í Sviss og ferðast og læra fyrir prófin í fjarnáminu sem verða 4. og 14. mai og ég hef ekkert verið extra dugleg enn ég notturlega þekki allveg svona sjálfsnám þar sem ég var á fróðá í fyrra í MA og eftir allt hjálpar það nú allveg smá, maður þarf allveg að pína sig smá áfram, enn ég ættla að ná þessum prófum þó ég sé reyndar ekki búinn að skila inn öllum verkefnum í þessu, ég vona líka að veðrið verði gott hérna í Sviss um páskana en Apríl er víst þannig mánuður að það gæti snjóað og rignað og þessvegna verið 20+°C  .. Ég þarf allveg alvöru tan, enn mamma er nú búinn að senda mér Brúnkukrem svo ég er allveg Jenný á ný;) 
Núna erum við líka aftur að fara að breyta klukkunni í nótt svo það verða 2 tímar milli Íslands og Evrópu, mér finnst þetta rosalega skrítið host mamma mín þarf alltaf að útskyra þetta fyrir mér..
Ég hef komist af því á þessari dvöl minni að það er svo margt heima sem ég þarf ekki svona nauðsynlega alltaf á að halda t.d klipping og litun.. hérna úti geri ég þetta bæði sjálf og plokk+lit sko þetta er eitthvað sem ég geri næstum því mánaðarlega heima og það er sko óþarfi að eyða 15 þús í svona, sá peningur fer núna í ferðalög hjá mér sem mér finnst meiri ánægja af :D 
Skólinn minn er með eitthvað rosalega stórt dans show sem ég þarf að taka þátt í og ég og mín gruppa erum með abba lögin og ég í fyrsta lagi HATA mamamía myndina og þessi lög eru ekkert beint í uppáhaldi hjá mér og svo sökka ég allveg með eindæmum mikið í þessum gelgjudans okkar enn við þurfum að halda þessa danssyningu í 3 daga, stelpurnar eru þvílíkt búnar að vera þolimóðar við mig og reyna að hjálpa mér í gegnum þetta, enn koma stundum fram við mig eins og ég sé allveg tóm í heilanum en svissfólk á það til að skipta sér of mikið af og það er sko alls ekki nóg fyrir þau að hugsa bara um sjálfa sig.. gerðu þetta og hitt, enn ég læt þau ekkert stjórna mér, bara kann ekki að segja eitthvað svona feis dæmi á þýsku haha ;) þau eru sæt
Ég er búinn að fá vinnu í sumar heima á klakanum, fékk vinnu á elliheimilinu Dalbæ á Dalvik og það er allveg rosalegur léttir að þurfa ekki að keyra alltaf á ak til að fara að vinna eins og í fyrra en ég mun nú samt sakna Bautans en mig hefur alltaf langað til að vinna á Dalbæ og ég fékk þá vinnu í kreppunni þvílíkt heppinn ;)
Ég er samt meiriháttar löt búinn að vera svo það stefnir allt í það aða ég verið AFS (another fat student) , ég keypti mér ræktarkort sem gilti bara til jan, stalst reyndar einu sinni í ræktina í skólann og þá koma eimitt kennarinn minn og spurði um kortið og ég bara jhá sko það er heima.. haha ég hef aldrei lemt í þessu þegar ég átti kortið enn svo eimitt þegar ég ættlaði að stelast í ræktina þá var ég gripinn svona glóðvolg.. haha enn ég fer stundum út að skokka og svo er ég notturlega orðinn rosalegur dansari ..!! NOT..!

Jæjja ég er allveg tóm í hausnum ég veit ekkert hvað ég á meira að bulla hérna ég hef allveg frá fullu að segja enn það vill bara ekki koma.. vona að einhvern nenni að lesa blogginn mín.. verið dugleg að commenta til að gleðja mitt litla hjarta.. ástarkveðja frá CH JEnný Svansdóttir 

Belgíuferðinn búinn og Austurríki bíður ;)Jenný Svansdóttir

Ég veit bara ekki hvar ég á í raun að byrja á þessu bloggi! 
En allavegna þá er ég byrjuð aftur í skólanum og ný önn er byrjuð og stundataflan er ekkert geggjuð ég er 2x til 5 og 2x til 3 og einu sinni búinn klukkan hálf tólf, þetta þýðir að ég get ekki farið eins oft í ræktina :( Allavegna þá er ég búinn að vera frekar óheppinn með veikindi mín, ég held að guð sé að refsa mér eins og Alexandra orðar það!!
Ég fór til læknis á mánudaginn og það var mjög áhugavert eitthvað ég kom þarna inn og hann var svona frekrar hress kallinn og allt í drasli og svo lokaði hann hurðinni og ljósið var slökkt og hann tróð vasaljósi upp í muninn á mér til að skoða nefholurnar eða eitthvað ;) og ég er semsagt með bakteríur í þessum holum öðrumeginn á andlitinu og er alltaf með hausverk enn ég fékk nú lyf og sé fram á bjartari tíma, svo keypti mamma mín handa mér svona vitamín töflur og ég held að ég verði nú bara að vera duglegri að taka vítamín og svona!!
Belgíuferðinn var algjört æði, ég og Alexandra erum notturlega heimsborgarar.. Við fórum um alla Belgíu bara og líka til Amstó, ég algjörlega öfunda Alexöndru með allann þennann góða mat og þessar fínu búðir og í Belgíu er svo gott súkkulaði og þar má maður prófa, svo þið getið rétt svo ímyndað ykkur hvernig við Alexandra vorum í Brussel borg, við gjörsamlega óðum inn í allar búðir og fengum okkur súkkulaði.. Þetta Belgíusúkkulaði hentar mér mun betur enn það Svissnenska því ég er meira fyrir svart súkkulaði en ekki mjólkursúkkulaðið eins og er svo vinsælt hérna.. Þetta var örugglega kaldasta ferð mín hingað til, mér var allveg skítkalt allann tímann, hefði frekar átt að sofa hjá sætu dverg geitunum hennar Alexöndru því herbergið hennar var frost..!! kannski líka því ég var veik með hálsbólu og vesen, enn við létum það ekkert stoppa okkur, fórum og versluðum í Andwerpen sem er í flæmskuhlutanum og ég sá svo hafið eftir hálft ár!! Við Lexa eignuðumst okkar uppáhalds veitingastað eða svona grænmetishollustukeðja sem heitir EXKI og var allveg rosalega hollt og gott því Burger King og þannig var stranglega bannað í þessari ferð..!!
Mér fannst Brussel borg skemmtileg og einn daginn var rosalega gott veður og við bara röltuðum í rólegheitunum um borgina og ég fékk mér frönskur í svona kramhúsi, ekkert spez hollt enn maður verður að prófa allt svona menningarlega dót..
orð ferðarinnar; orustuþota, æji spurðu bara þú sérð þau aldrei aftur og
Ég er ekkert rosalega mikið að elska skólann minn núna enn ég er alls ekki sá eini skiptineminn um það við erum öll bara nei þetta sökkar, þetta er ömurlegt í skólanum.. Mér finnst í alvörunni eins og ég sé ekki til í bekknum mínum, ég er bara loft þarna.. Svo er ég notturlega ekkert meira spennandi lengur því núna er ný stelpa kominn í bekkinn, enn æjih ég fer samt alltaf með jákvæðu hugarfari í skólann og núna heng ég bara með strákunum, sit hjá þeim það er mun skárra, ekkert vesen sko..!! Enn það er svo margt annað skemmtilegt svo ég læt skólann ekkert pirra mig neitt, ég vill samt vita hvað er að pirra þau, stundum allveg þvílíkt spjalla þau við mig og hinn daginn er ég bara ekki þarna..Undecided  
Allavegna þá veit ég allveg núna hvað er að vera einmanna og hafa engann og ég finn það svo hvað ég er heppinn að eiga svona marga góða vini heima, maður væri ekkert án ykkarSmile 
 Ég er búinn að ákveða að fara ekki í útskriftarferð MA og ég er mjög leið yfir því sjálf að fara ekki enn það er bara ekki hægt að gera allt, allavegna miðavið ástandið núna heima, ég ættla bara að vera extra dugleg að vinna í sumar því okkur vinunum langar að búa saman á Akureyri næsta vetur, ég þori sko alls ekki að keyra á milli meira.. þó það sé fínt!
Ég er samt ekki ennþá búinn að fá neina vinnu ennþá enn ég nenni ekkert að hugsa útí það strax, ég er núna búinn að vera hérna í meira en hálft ár og ég er byrjuð að fa svo mikla Íslandsdraumu, mig dreymdi að Tara kisan mín hafi eignast tvo kettlinga og mér finnst alltaf eins og mamma sé að kalla á mig, ég er samt alls ekki með neina heimþrá lengur, þetta er bara svo skrítið ég trúi því ekki að ég sé búinn að vera hérna í Sviss í hálft ár enn ég finn það samt á muninnum á mér því ég tala bara fína þýsku og skil svissnenskuna bara ágætlega.. og ég meira að segja finnst betra að telja upp á 5 á svissnensku.. haha!! 
Það er búið að vera ótrúlega mikill snjór hérna í Brugg í vetur og núna er alltaf svo fallegt veður það kanski snjóar um nóttina og svo kemur allveg geggjað mikil sól á daginn og það er svo geggjað, ég ættlaði að fara seinni vikuna mína í fríjinu á skíði með mömmu minni enn það var stormur í ölpunum og ég var veik enn ég er nú að fara til Austurríkis næstu helgi að hitta Andra og félaga á fjöllunum og auðvitað Alexöndru mína líka, enn við erum nú alltaf að hittast hún þessi elska kom til Zurich í gær því hún þurfti að skipta um lest þar og bíða í 2 tíma, svo ég og Ida vinkona mín fórum og biðum á lestarstöðini og aldrei kom Alexandra enn svo ættluðum við Ida að gefast bara upp enn þa´hringdi Alexandra í mig þá fór þessi dúlla bara niður í moll enn ekki á aðaltorgið, sá maður ekki bara einhverja crazy blone sem lýsti upp svæðið, við hugsum bara svo ekki eins þegar kemur að lestarstöðum, og hún allveg grenjaði eins og úlfur úr hungri svo við hlupum á næsta stað þar sem hún borðaði og við Ida drukkum kaffi..Grejið Ida var bara hrædd að hlusta á okkur tala Íslensku, og fannst svo skrítið hvernig Alexandra gæti haft svona ljóst hár og verið með svona dökkar brúnir..!! plokk+litunn ;)
Við Ida fórum svo heim til mín og elduðum saman og drukkum tee og Ida sagði mér að host mamma hennar hafi sagt við hana; þú ferð í taugarnar á mér..!! jhá host mamma hennar er sko abbó útí Idu því hún og host pabbi hennar fóru á svona eftirski djamm í fjöllunum og komu full heim og henni finnst líka pirrandi að Ida sé alltaf að spyrja, svo heyrði Ida mömmu sína baktala hana á svissnensku..!! ég bara áts, shit hvað ég er heppinn með fjölskyldu ég allveg elska host mömmu mína hérna hún er svo mikil dúlla.. enn hún er samt mjög sjaldan heima enn hún er bara svo busy enn leyfir mér samt að búa lengur hjá sér þar sem ég átti bara að vera hérna í 3 mánuði enn það er nú aldeilis meira enn það.. Laughing 

Ég set inn eitthvað af nýjum myndum og blogga svo seinna um Austurríkisferðina mína til Sölden..
Ástarkveðja Jenný Svansdóttir 

ais - zwai - drü - vier - foif - sächs - sibä - acht - nün - zäJenný Svansdóttir

Þetta líf er ótrúlegt, þetta líf er ótrúlega fljótt að líða, þetta líf er svo skemmtilegt!!
Núna er dvöl mín í Sviss hálfnuð og ég búinn að búa hérna í meira en 5 mánuði, ég er búinn að gera ótrúlega margt síðan ég kom og þetta er í raun rétt að byrja, núna er maður nefnilega loksins kominn inn í samfélagið og ég verð að segja að heimþráin mín er farinn í bili og voanndi sé ég hana ekki á næstunni, þýskan er svona la la að koma eða meira kannski af Svissnenskum orðum að koma inn núna.. !!
Ég er allveg að elska það að vera hérna í Sviss og ég finn það hvað mér þykir ótrúlega vænt um Sviss og ég er bara ótrúlega stressuð að hugsa heim sérstaklega eins og ástandið er núna, hérna er maður inn í hálfgerðri skel og er eitthvað svo vermduð. Ég fékk t.d bréf frá AFS um mánaðarmótin og þá hafa verið mjög mikil vandamál milli fjölskyldna og skiptinema, enn hjá mér er bara allt í góðu og fjölskylda mín er bara krúttleg og klikkuð á góðan hátt, ég er líka svo heppinn að vera orðin 18 og mamma mín sagði að í Sviss ræður maður yfir sér sjálfum eins og heima nema + áfengi og þá mætti ég bara gera allt sem ég vildi enn auðvitað spyr ég alltaf!!
Ég vill líka minna á það að elska litla systir mín fallegasta átti afmæli í gær og er nú orðin 12 ára, tíminn svo sannarlega líður fyrir mér er hún endalaust bara 7 ára, eða ég man eins og í fyrra að hún hafi fæðst, mamma var mjög pirruð stóð eitthvað í þvottahúsinu komin eina enn ferðina heim af sjúkrahúsinu og ennþá ólétt enn svo loksins kom Kolbrún okkar !! 
Janúar er búinn að líða óhemju hratt og það er bara vika í Sportferien hjá mér sem er í c.a 2 vikur og ég er núna búinn að kaupa mér miða til Belgíu á dýrum dómi enn það er þess virði, gæti þetta ekki nema að fá að knúsa Alexöndru mina svona inn á milli, það var fínt að taka þetta svona í áföngum ég þarf reyndar að skipta um lestarstöð í París, hef aldrei farið þangað áður en verð það ein í klst og þarf að finna réttan metro til að fara frá austurlestarstöðinni til norðurlestarstöðvarinnar enn ég er ung og sjálfstð kona, það er þá ekki versta í heiminum að týnast í Parísarborg.. Við vinkonurnar munum bralla eitthvað ægilegt saman í Belgó og er ég ótrúlega spennt að sjá allt hjá Alexöndru og svo klikkar það ekki að hún gaf mér miða á Emiliönu Torrinu í Brussel á Sunnudaginn næsta..!!
Enn ég kem svo aftur heim 9.Febrúar og þá er stefnan tekin á eitthvað chill og svo skíðaferð með honum elsku Nick mínum upp í fjöllunum og vonandi ef gefst tími að kikka á TOP OF EUROPE :D
Mér til mikilla ánægju er Andri félagi minn að flytja til Sölden í Österreich svo ég er kominn með einn góðan nágrann sem ég mun eflaust kikka á þarna í Austurríksku Ölpunum í vetur..!!
Varla er hægt að tala um vetur hérna hjá mér ennþá það var mjög kalt fyrstu 2 vikurnar í Janúar og núna er sko bara að koma vor eða eitthvað sólin skýn á hverjum degi og það er enginn snjór samt er pínu pjonk eftir af snjókarlinum sem við Alexandra gerðum og ein laufblaðahrúga..
Skólinn er allveg fínn, ég er meistari í Sudoku enn það er svo fynndið að við stelpurnar erum núna búnar að vera að æfa svona erobik dans og við þurfum víst að SÝNANN.. ég er nú ekkert rosalega spennt fyrir því þar sem aðal gelgjan í bekknum mínum gerði okkar dans og hann er mjög ASNALEGUR.. haha og ég kann hann rétt svo.. þetta verður eitthvað agalegt sko.! Svo kemur nýtt stundenplan (stundatafla) í Febrúar eftir Sportferien og mér líst svona allveg ágætlega á hana enn það er tvöfaldur ensku tími með Frau Merker , enn hún er núna sem betur fer á Spáni í spænsku skóla í mánuð svo við fáum allveg fínt frí frá henni enn erum með annann kennara í staðin sem er frá gömlu sovétríkjunum og allir í bekknum mínum eru alltaf að gera grín af þýskunni hennar, og hún sagði mér líka að hún hefði farið á Svissnenskunámskeið, eitthvað sem ég myndi ALDREI gera.. haha vissi ekki einu sinni að það væri til..!!
Ég er núna bara á fullu að reyna að gera góða hluti í Fjarnáminu mínu sem er uppeldisfræði 103 og líffræði eða náttúrufræði 103, vona að það geti létt eitthvað á næsta vetri í MA.. 
Annars fór hlelgin bara í lærdóm til að þurfa ekki að læra mikið í Belgíu og svo fór ég að skoða Scloss eða kastalan í Kyburg sem er svona safn og við Gisela vorum að deyja úr kulda og fórum á svona gamlan sveita Sviss restaurant sem ég elska svo krúttlegt og svo um kvöldið fórum við famalían út að borða á Ítalskan veitingarstað hérna í Brugg..
Jæjja ættlar Ísland ekki að fara að gera neitt í málunum ég sé hérna myndir af Alþingishúsinu öllu grýttu ég var allveg crazy mér finnst nú ÓÞARFI að ráðast á eins fallegt hús!! ég er samt spennt að fá að kjósa í vor,enn hvað það verður veit ég nú ekki, jæjja ég blogga ekki meira í bili vona að einhverjir nenni að lesa þetta sem ég er búinn að skrifa.. 

Allavegna ástar og saknaðarkveðjur frá Suisse .. Jenný Svansdóttir verðandi Belgíufari ;) 
p.s er að hlusta á Líu Lú ;) yeah keep bleeding.. húvv jéé
 

Nýtt ár og ný tækifæriJenný Svansdóttir

Ég vil byrja á því að minnast 50 ára byltingarafmælinu á Kúbu, þar sem ég er mikil aðdáendi Fidel Castro og Cubu yfir höfuð.. Fannst frekar fúlt að sjá gamla ekki í fréttunum er Raúl er notturlega núna forsetinn.. Lengi lifi FIDEL CASTRO Laughing örugglega ekki allir sammála mér en hann er idolið mitt, mér finnst hann vera hetja Kúbu, finnst byltingarsaga hans meistaraverk!!

Annars er komið nýtt ár, já kæra fólk 2009 er gengið í garð!!
Verð að segja að árið 2008 var jah erfiðasta ár mitt í mörg ár, það byrjaði ekkert svakalega vel enn ég get svosem farið yfir þetta í stuttum orðum;
- Áramótin voru bara æðisleg, fórum á Palla ég, Sæunn , Eva og Alexandra.. förum svo næst stelpur mínar :D
- Ég var ótrúlega stressuð yfir prófatíðinni náði samt öllu nema féll í stæ 122 með 4 .. stæ djöfullinn ræðst á mig..
- Ég fékk einhverja slæma sýkingu í hálsinn eftir prófin og fór með brúnkukrem á mér til læknis hahaInnocent fake bake:)
- Janúar var eiginlega sá versti, enn við stelpurnar bættum allt upp með djammi
- Oft voru það kvöldin heima hjá Matta sem við stelpurnar áttum, svo góð kvöld..
- við vorum duglegar að fara suður um helgar að hvetja MA í ýmsum keppnum
- Ég knúsaði Hafliða minn í Mars sem er nú þegar komin heim frá Argentínu, líður svo fljótt
- Fróða var ekki að gera góða hluti í skólanum, við Alexandra stálumst alltaf fyrr heim úr skólanum, ekkert mál!
- Ég féll í öllum kaflaprófum nema seinasta í stæ 313
- Ég fór 2 x í bíl útaf veginum með vinum mínum (sjokk)
- Ég fékk ekki vinnu í bæjarvinnunni með krökkunum svo Inga mín reddaði mér vinnu á Bautanum í Mai!
- Seinni prófatíðinn gekk bara mun betur rústaði stæ 313 með 7 ekkert fall og hækkaði meðaleinkunnina;)
- Ég byrjaði á Bautanum í júni eftir 3 sýkinguna mína í hálsinum eða var það 4..!
- Ég kynntist frábæru fólki í vinnunni, keyrði notturlega á milli og bjó hjá Ingu og Köru líka (takk stelpur mínar)
- Ég fékk að vita með fjölskyldu mína í Júlí, þá orðin frekar spennt fyrir Sviss
- Við Alexandra keyrðum í fagra Seyðisfjörðin á L.ung.A hitti Guðrúnu mína þar!
- Við Aron, Eva og Alexandra fórum hina frægu verzló ferð á Nesk svo var brunað í bæjinn og lumbrað á lýðnum;)
- Fiskidagurinn BESTUR.. Guðrún kom til mín og Inga skreið líka inn til mín, svo gott djamm.. tel niður fyrir næsta!
- Svo fór ég í slátrun til tannlæknis, ég læt taka endajaxlana bara í sumar, fæ mér róandi fyrst haha
- Ég varð svo stressuð fyrir Sviss að ég fór á 6 pencillinkúrinn minn (fann út að þetta var ekkert hálsbólga bara stress)
- Ég fór suður með fjölskyldunni, kvaddi mömmu og pabba með tárinn og kökk í hálsinum á Kefló Flughafen.!
- Ég var veik á leiðinni til Sviss og beið í fkn 5 tíma á kastrup lufthafen í DK eftir flugi til Zurich
- Fyrsti mánuðurinn í Sviss var ég í tungumálaskóla í Olten með hinum skiptinemunum.
- Fór í Ítalíuhluta Sviss í okt Tessin og til Italíu
- Fór í 25 KM langa göngu um Svartaskóg í Þýskalandi líka í Okt..
- átti erfiðasta og leiðinlegasta afmælisdags lífs míns þökk sé bankahruninu..!! Ég hélt að það væri að koma stríð heima:/
- byrjaði í Kanton Schule Wettingen um mið okt
- Nóvember var erfiður mikil heimþrá enn fékk sem betur fer að fara til Milano og hitta Sússu og Nönnu;)
- Desember fór í jólagjafakaup og annað, dreymdi í fyrsta sinn á þýsku þá, mér til mikilla ánægju!
- Kara kom líka til mín í 5 daga, ótrúlega gaman hjá okkur.. fannst eins og hún hafði verið hjá mér allann tímann!
- Jólin voru erfiðari enn ég hélt, hélt að ég væri komin yfir heimþránna enn hún magnaðist upp fyrir jólin:(
- ÉG sótti Alexöndru mína til Basel 26.des, það var bara dottið í það fyrstu tvo dagana og haft gaman..
- við fórum í frönksuhluta Sviss eða til Genf, mjög falleg borg enn skít kalt .. og fórum líka til Bern sama dag!
- Við Alexandra skelltum okkur með bróður mínum og kærustu hans til Þýskalands í Europa Park 31.des
- Ég píndi mig í ALLA rússibanana sem voru opnir með Alexöndru minni og fékk hausverk og ógleði eftirá :S
- Við Alexandra komum dauðþreyttar heim og hálfsváfum okkur inní nýja árið.. Það gerist EKKI á næstu áramótum!!

Já ég er bara feginn að árið 2008 er búið og það ótrúlegasta er að skiptinema árið mitt 2008 er líka lokið maður er að koma heim á þessu ári, svo áramótaheitin í ár eru bara einfölld ;
(-- Kýla á Þýskuna -- Borða bara brauð um helgar -- komast í gott form fyrir útskriftaferðina -- ferðast eins og ég get --)

Annars er bara skólinn að byrja á morgun, nenni engann veginn enn ég verð víst að vera bara jákvæð, þýðir ekkert að kvarta neitt lengur allt of stutt í það að maður komi aftur heim á Klakann, kem samt pottþétt fyrr heim ef það verður bylting á Íslandi, ég ættla nú ekki að missa af svona sögulegum atburðum.. Allavegna er Sviss orðið viðbjóðslega dýrt fyrir mig 100kr ísl voru 0.78 frankar enn er núna 1.16 frankar! Svo ég spara meira að segja tannkremið þangað til ég fer til Belgíu að hitta Alexöndru þann 31.janúar.. svo stutt bara:) 

Enn ég blogga aftur seinna í Janúar.. ástarkveðja Jenný Svansdóttir sem er byrjuð á háalfarlegri dagbókarskrift
p.s setti líka inn nýjar myndir:)

Fröhliche Weihnacht ÜberallJenný Svansdóttir

Ég held að ég verði að byrja á því að óska mínum elskulega stóra bróður til hamingju með 22 ára afmælisdaginn í dag, ég man eins og í gær þegar hann var 17 ára að fá bílprófið, tíminn líður allt of hratt.. En þetta er ekki eina afmæliskveðjan heldur var Embla mín 20 þann 21.Des, vona að hún hafi átt frábærtan dag.. Svo ef ég man rétt á Valur frændi afmæli 25.des.. Það eru þessa vegna alltaf mikið um góðan mat og veislur í fjölskyldunni á þessum tíma, má segja tvöföld jól;)
      
Mér finnst allveg ótrúlega skrítinn og ólýsanlega tilfinning að hafa ekki mömmu, pabba og systkini mín hjá mér á þessum tíma ársins!! Ég þarf að fórna humarsúpu, það svíður verð ég að segja..!! Enn bara þetta venjulega heima; mamma og pabbi kósveitt í eldhúsinu að reyna að gera jólmatinn sem eftirminnilegastan, elsku amma kemur svo úr vinnunni kl 4 og hún og afi alltaf mætt svona um hálf 6 leitið, Tara mín fær alltaf fína rauða slaufu um hálsinn og við systkininn förum alltaf með pabba upp í kirkjugarð og setjum kerti á leiðin! Svo er það líka indæli möndlugrauturinn hennar mömmu, fáum alltaf aðra fjölskyldu meðlimi í mat og keppumst um möndluna.. Svo finnst mér líka alltaf þó ég borði ekki skötu gaman að fara í skötuveislu bara til að finna fýluna og hitta fjölskyldu pabba hjá ömmu Stínu og afa Otta. Aðfangadagsmorguninn fáum við líka öll eitthvað í stórt í skóinn!! Svo má alls ekki gleyma lyktinni sem ilmar um húsið okkar, mamma setur alltaf eitthvað í pott og lætur sjóða svo þessi góða lykt kemur allann daginn.. það er bara svo margt sem maður tekur ekki eftir hvað skiptir manni raunninni miklu máli með að halda jólin með þeim nánustu.! Enn ég elska líka fjölskyldu mína hérna og mér finnst mjög spennandi að fá að halda jól með þeim, þau eru búinn að reynast mér ótrúlega vel og ég hefði aldrei vilja fá neina aðra host fjölskyldu, við verðum bara 3 saman ég, mamma og Raphael.! 

Ég er svo heppin að fá ein að sjá um að skreyta jólatréið, Raphael treysti sér ekki allveg í það og ég tók eftir svolitlu sérstöku að þau hafa lifandi kerti, já mamma mín sagði mér að hér væri enginn rafmagsería, ég held að það sé flottara að hafa svona alvöru;) Við ættlum að borða svona kjöt súpu fondue, að ósk Raphaels! Ég bað hinsvegar um eitthvað annað enn allvegna verður hindberja heimatilbúini ísinn minn í eftirrétt;) Ég sagði líka við þau að þau ættu að hafa það sem þau vildu ég vill sjá hvernig jólin þeirra eru, ég get alltaf fengið íslensku jólin!! 

Svissnesnsk jól eru samt auðvitað mikið öðruvísi heldur en heima og samt er þetta rosalega mikið fjölskyldan að hittast og gleðjast saman, ég fór t.d í sveitina til ömmu mausi (amma mús) og afa,sem eiga rottweiler hund sem er sko bara að rotna hann er svo gamall og sætur, en þau eru voðalega krúttlega, hef í alvörunni aldrei farið á svona sætan sveitabæ í lífi mínu, miklu flottari sveitahúsin hérna í Sviss heldur en heima á Klakanu, svo vönduð og homeí eitthvað.. Enn allavegna töluðu þau bara svissnensku og ég skyl alltaf meira og meira í henni;) Gamlan gaf mér Lindt Lindor súkkulaði kúlur sem er uppáhaldið hans Raphaels og svo fékk ég rauðvísflösku á veitingastaðnum sem við borðuðum á, það var ekta svona sveita restaurant, með einu hringborði þar sem menn, venjulegir karlar hittast, ræða pólitík og reykja!! 
Ég hef annars bara verið að taka því rólega þessa dagana, maður bíður bara eftir jólunum og VONAR að fá snjóinn aftur, hann fór fyrir tveim dögum og fótboltavöllurinn fyrir framan húsið mitt er grænn..:( 

Ég allvegna klikka ekkert í ár samt með George Michael, mjög leiðinlegt og sárt að missa af því að hlusta ekki á hann með pabba í ár, Last Christmas er eimitt uppáhalds lagið hans.. (NOT), já ég sakna þess nú að hafa hann ekki í botn og heyra pabba segja; Jenný Svansdóttir viltu lækka í þessu hommapoppi.. haha enn hérna í Sviss er ég bara Jenný söngkona og Raphael er alltaf að hæla mér fyrir "góðan" söng :) Ég stalst eimitt út með Desember diskinn hennar Siggu Beintens;)

Það sem bjargar jólunum mínum í ár er að hafa fengið að sjá litlu gullin mín, Köru sem var hérna í seinustu viku. Mikið var skrítið að sjá hana, leið fyrstu 2 dagana eins og í draumi, en í raun höfum við ekkert breyst við verðum alltaf við bestar saman í einhverju flippi, ég og Kara áttum bara mjög góða stund saman hérna í Sviss og ferðuðumst aðeins annars var það bara við að dúlla okkur eitthvað eins og vanarlega.. Hlakka bara strax til að fá að knúsa hana aftur í sumar.. Svo er Alexandra mín að koma með lest frá Belgíu þann 26.des, ég hef aldrei átt jól án Alexöndru í mínu minni, við hittumst ALLTAF á aðfangadag og kúrum saman, enn Eva mín veðrur bara í huga mér allann tímann :/ !! Það er alltaf hægt að gera gott út hlutunum, við Alexandra höfum báðar verið mállausar í okkar löndum enn jah þýskan hún er nú öll að koma, fékk svo mikið af hrósum frá fólkinu í skólanum á föstudaginn að ég fór bara hjá mér!!Innocent  Allavegna er það klárlega besta jólagjöfin að fá að sjá stelpurnar mínar.. Ég vil líka þakka fyrir jólkortin sem komin eru til mín núna, og þau seum voru sæt að senda mér lítinn pakka!! Svo líka bara takk enn og aftur fyrir  að kvitta í skoðanir með smá kvattningu, þið vitið ekki hvað smá lítil kvattning getur stundum bjargað erfiðum degi hjá manni!! Og þeir sem hafa ekki fengið jólakort frá mér þá segi ég bara;
Kæru landsmenn næsr og fjær ég óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári,
Megi guð og gæfan fylgja ykkur um ókomin ár og þakka liðnar stundir á árinu sem er að líða..Laughing
Hlakka til að sjá ykkur í sumar.. (K)

svo smá á þýskunni; Fröhliche Weihnacht Überall .. Juleklemmen; Jenný Svansdóttir (norskan sem Ida kenndi mér) Wink

Ég þarf RÓANDIJenný Svansdóttir

Ég er rosa rosa ROSALEGA spennt Kara min er LOKSINS að koma til mín og það á morgun, sem betur fer er ekki þýska í fyrramálið svo ég get sofið lengur, allavegna betra ef ég næ mér ekki niður í kvöld af spenningi??!?!
Jhá 4 mánuðir aðskilnað fyrir stelpu eins og mig og Köru sem tölum saman daglega og segjum hvor annari allt þá er þetta bara búið að vera svolítið mikið erfitt, enn halló hún er að koma á morgun loksins, ég ættla að sækja þessa elsku á Zurich Flughafen eftir skóla svo vonandi finnum við hvor aðra.. !! Svooo er líka bara svo stutt í Alexöndru mína..!!
Við þraukum þetta allar..!!
Stefnan er á party í Basel á morgun með Nick mínum, og svo afmæli hjá afa mínum á Sunnudaginn, annað er bara leyndó.. mun segja ykkur alla körusöguna fyrir jólLaughing 

Annars er ég nú búinn að hafa það nokkuð gott, já já skólinn bara að verða búinn, förum í jólafrí 19.des. Mamma mín spurði hvort að það væri ekki skóli þann 24.des.. ég bar HA!?! jú´ju þá er það bara normal hérna í Sviss að fyrir svona 2 árum var kennt á aðfangadag.. Verð að segja að Jólin heima eru miklu stærri, kannski er allt farið út í öfgar hjá okkur, bara veit ekki!!

Ég verð að lýsa ánægju minni yfir pakkanum frá Íslandi sem mamma og þau sendu mér.. Vá ég fékk sko mágal og allt, það kalla ég veislu;) Hef samt ekkert að gera með súkkulaði, ananrs þá hefur fólk verið að spyrja mig hvað ég vilji í jólagjöf, eitthvað lítið og sætt segi ég ef það vill endilega gefa mér eitthvað, annars eru peningar alltaf frábært gjöf þegar maður er erlendis, ég nefnilega sé ekki tilganginn með því að fá stóran pakka frá Íslandi og þurfa svo eftir hálft ár að taka hann með mér heim, ég er nú þegar búinn að kaupa mér slatta af dóti..!!

Annars hlakka ég bara orðið til að eiga jól hérna, það er búið að snjóa núna allveg fullt eða "fullt". ég eimitt átti einvhern sökker dag í gær og kom svo heim kl 6 úr skólanum og borðaði eins og fíll og mömmu minni datt si svona í hug að við færum saman í fjallgöngu, ég bara já já.. með fullann magan af mat löbbuðum við upp Bruggerberg í skóginn, vá það er svo bein brekka upp, mamma mín lánaði mér skó og við fórum og löbbuðum í skóginum, vá Bruggerberg Wald var svo fallegur, fullt af nýfallnum snjó á trjánum, við vorum allann tímann að reyna að leita af villisvínunum og dýrunum sem bú þar, fórum fyrst upp í svona kofa lengst upp í skóginum, sátum þar um stund enn engin dýr komu, svo löbbuðum við í snjó sem enginn var búinn að labba í og frekar dimmt og fórum inn í þennann bananahelli sem öll börn í Brugg verða að fara í gegn um án þess að hafa ljós, enn við höfðum ljós með okkur, smá krípi, tek ALexödnru með mér þangað þegar hún kemur með ENGU ljósi.. :) Bara gaman svo fórum við á útsýnispall og þegar gott veður er sér maður Jungfrau, the top of Europe eins og fjallið er nú kallað á ensku.! Þessi ganga var um 2 tíma og ég líka stein sofnaði, hefn nefnilega átt erfitt með að sofna á kvöldin, er einhvern spenna í mér, held ég bara fari út að labba meira, algjört meðal við þessari vöku!!

Á föstudaginn seinasta sá ég Schamiclaus (jólasveininn) og Schmutzli kom með á AFS Treffen in Wohlen, jhá það er nenfilega örðuvísi hérna í Sviss kemur bara jólasveininn 6. des(bara þann dag og svo ekki meir) með Schmutzli sem er skítugur aðstoðamaður hans, svartur og börnin eru hrædd við hann, hann er með trjágrein til að rasskella óþægu börnin (ég slapp í ár), svo er Schamichlaus með bók sem hann les upp hvað við höfum gut gemacht und nicht so gut!! (gott og slæmt gert af okkur) hann las fyrir okkur skiptinemana þetta með að koma inn í nýtt land og svona, tókum svo söngva á Svissnensku, það gekk samt ekki vel!
Svo bakaði ég smá um daginn, stolt af mér fyrir það.. ég semsagt gerði brúnar kökur og Marlinanderin, skelli inn nýjum myndum af þessu.... ;)

Enn ég þarf að fara að þrýfa og svona áður enn Kara kemur.. jibbí ejijjeie.. 

                                      ÉG blogga svo um ævintýr okkar í næstu viku Smile
       Jenný OFUR spennta(((
 

100 daga, 1/3 og MilanoferðJenný Svansdóttir

Ég ákvað að blogga í dag þar sem ég er búinn að búa í Sviss í 100 daga, ótrúlegt en satt.. eftir allt líður tíminn víst fljótt reyndar hafa þessir hundrað dagar stundum verið eins og hundrað ár enn ekki þegar ég lít aftur og 1/3 af dvöl minni hér í Sviss er lokið ef stærðfræðingurinn ég tel rétt Laughing 
Svo er bara kominn Desember og við litla fjölskyldan erum með svona krúttlegt heimatilbúið dagatal sem við opnum til skiptis, ég fór um daginn og keypti bara súkkulaði handa mömmu minni og Raphael, þetta er nefnilega svona eldspýtustokkar sem við setjum eitthvað leyndó í handa hvort öðru og skiptumst svo á að opna!!
Ég er svo líka bara orðin rosalega spennt fyrir jólunum, fæ bæði að hafa Köru og Alexöndru hjá mér, bara minna en 2 vikur í Köru og minna en mánuður í Alexöndru, rosalega verður gott að fá að knúsa þessar elskur eftir meira en 4 mánuði aðskilnað!

Annars þá "skrapp" ég til Milano að heimsækja Sússu og Nannlingurinn kom lika frá hinu fagra Skotlandi, (ættla svo að heimsækja hana líka) ég semsagt tók lestina seinnipartin á föstudeginum frá Bern til Milano, allveg alein.. haha.. og svo komu þessar elskur og sóttu mig á lestastöðina, jesús hvað það var gott að sjá þær og knúsa, tárin féllu sko niður á kinnarnar, samt bara gleðitár.. Svo fórum við bara strax heim til Sússu í litlu sætustu íbúð sem hægt er að hugsa sér og svo út að fá okkur smá!! Svo var bara Milano skoðuð og við sáum hina fögru Domu og umtalaða hestinn minn, tók eimitt fullt af myndum sem ég set hérna inn með blogginu..!! Fórum svo í einhverja fokdýra snobbbúð og 5-6 hæðum bara með aðal merkjavörunum, ég var bara hálf hrædd þarna inni í la Rinacentrale, svo boðuðum við sögumlega mikið þarna, fórum á fínustu staði, fórum t.d eitt kvöldið á svona bar sem við keyptum okkur einn drykk þá fylgdi bara matarhlaðborðið með.. já og það var sko borðað, enda ekki búinn að fá góðan mat í 3 mánuði, maturinn í Sviss er ekkert til að klappa húrra fyrir!! Svo þurfti Nanna að fara aftur frekar snemma á Sunnudeginum og við rifum okkur upp og með hana út á lestarstöð svo fórum við Sússa bara að versla og ég verð að segja að ég verslaði nánast ekkert, enda óhemjumikið af fólki í borginni og maður gat bara ekki eimbeitt sér enn ég keypti mér milano make up dót, 2 sett af ræktarfötum og pils sem ég hef leitað af hérna í Sviss svona svart sem nær hátt upp á maga, mjög flott svo ættlaði ég nú að versla jólagjafirnar þar enn það varð ekkert úr því nema verslaði smá fyrir elskulegu litlu systur mínar! Við Sússa fórum svo á geggjaðan kinaveitingastað löbbuðum þangað í -3000°C, enn sem betur fer borgaði það sig nú því maturinn var svakalega góður og við fórum þaðan út rúllandi..Smile 
Svo á mánudeginum fór ég með Sússu í skólann á fyrirlestur um YSL, mjög fræðandi var á ítölsku og ensku svo skrapp ég í smá myndartöku svona rokk ekki allveg ég því miður.. enn gaman að sjá hvað Sússa er að bralla þarna í skólanum sínum svo var það þriðjudagurinn við fórum þá niður í bæ ég keypti minjagrip og við heim og náðum í töskuna mína stóru og náðum traminum á lestarstöðina, enn NEI hann hel***** henti okkur út og sagði okkur að taka strætó að lestarstöðinni enn halló hvar var strætó, hann var ekki og ég þurfti að fara eftir 10-15 mín.. Svo við hlupum já við hlupum um borgina, vissum ekkert hvar við værum, shit stressið, enn ég var orðin of sein kortsem er svo við hlupum ég í flíspeysu og dúnulpuni frá cintamani og frekar sveitt með líka stóru ferðatöskuna og frekar ógeðsleg þegar ég kom á lestarstöðina í Milano og sem betur fer þurfti ég ekki að kaupa mér nyjan lestarmiða heim því hann er víst alþjóðlegur, þurfti bara að kaupa sætið, svo ég kom heim um kvöldið kl hálf 10, þurfti bara að skipta um lest í Zurich og fór líka aðra leið heim sem var aðeins lengri og var með einhverri gamalli ítalskri konu sem var Svissnensk, bara úr ítalíuhlutanum og hún var þvílíkt að reyna að spjalla við mig og ég skildi lítið en svaraði henni bara á Þýsku og hún skildi mig hahaCool
Milanoferðin var bara svaklaega fín og allveg nóg af búðum í þessari borg það vantaði nú ekki enn það var líka rosalega gott að koma aftur heim bara, ég saknaði sko Sviss þegar ég var á Ítalíu.

Svo er núna aðeins snjór samt ekki á götunum og það er svo geggjað að labba heim eftir skóla jólaljósin niður í gamlabæ og svo þegar ég labba upp brekkuna heim til mín og horfi á Bruggerberg þá kemur svona reykur úr öllum húsunum og svona smá snjór á þökunum og svona vetrarjólalykt í loftinu, vá það er svo geggjað.. allveg elska það!! Jólaljós hérna eru samt svo allt öðruvísi enn heima, miklu minna, öll hvít og sovna rosaleg slöngumunstur og svona smekklegra stundum er þetta nefnilega aðeins of mikið heima!! 

Annars er skólinn allveg fínn hérna hjá mér, hlakka samt bara til að fara aftur í MA næsta vetur og hafa brjálað að gera, það er nefnilega skárra í alvörunni heldur en að hafa ekkert að gera svo alltaf eftir skóla nema á miðvikudögum því þá er ég búinn um 5 þá fer ég í ræktina til að drepa tímann og svo reyni ég að finna eitthvað, það er bara svolítið erfitt að taka þátt þegar maður skilur ekkert mikið annars þá líkar mér ekki vel við ensku kennarann minn Frau Merker hún er mjög erfið og erfitt að gleðja þessa konu og hún kennir mér líka og hinum skiptinemunum þýsku og föstudögum og hún kom til mín í gær og þvílíkt dásamaði mér fyrir framfarir í þýskunni, sagði að mér hafi farið mikið fram og spurði hvort að mér finndist það ekki líka en í raun finn ég ekkert fyrir því enn það eru alltaf að koma fleyri orð inn í hverri viku breikkar orðaforðinn minn enn að hún hafi komið svona til mín og sagt þetta vá hvað ég var hissa og ÁNÆGÐSurprised er ennþá bara að reyna að komast niður á jörðina, Frau Merker sjálf, þetta var bara eins og draumur hélt að hún hataði mig svo innilega.. jæjja allt getur víst gerst í þessum heimi og svo gaman að segja frá því líka að við stelpurnar erum búnar að vera í handbolta í íþróttum í þessum mánuði og ég verð að segja að ég hef eitthvað breyst sko, haha eftir tímann okkar fyrsta þá kom kennarinn til mín og bara vá Jenný þú ert svo góð í handbolta hvað hefurðu æft lengi .. svo komu nokkrar stelpur líka til mín og bara Jenný þú ert ekkert smá góð hvað æfðiru lengi á Íslandi ég notturlega bara MJÖG hissa og líka stelpan sem æfir handbolta kom til mín, hef aldrei verið talin góð enn ég hlóð inn mörkunum þennann daginn og ég var bara hissa á sjálfri mér og Kara ef þú ert að lesa þetta þá veit ég að þú hefðir rifnað úr stolti að sjá mig þarna.. hver veit nema að framtíðin sé handbolti hahahaEmbarassed ja ég sagði bara stelpunum að handboltinn væri í Íslenska blóðinu eins og salsa hjá suður ameríkunum!! 

Já víst að fótboltinn gekk ekki í Sviss þá hlítur annað að koma í staðinn, svo vorum við líka í fimleikaprófi um daginn annar hef ég verið svo mikið veik í þessum mánuði, hélt ég kæmist ekki til Milano, var með hita og hálsbólgu og mikið kvef og geng núna orðið með snítiklútinn því það er ALGJÖR dónaskapur hérna að sjúga upp í nefið svo eins gott að passa sig!!  
Gaman að segja frá því að ég skrapp með skólanum í þessari trúabragaðfræði í gyðingakirkju, hef aldrei séð svoleiðis áður, Hitler sjálfur náði aldrei til Sviss svo það er flutt af gyðingum hér, kirkjarn var mjög spes, tómleg með svona gyðingaljósum sem við höfum í eldhúsglugganum okkar á Íslandi svo fór ég líka í Muslima hof eða kirkju ég var nú bara skíthrædd þar, þarft að þrýfa þig fyrir bænastund og svo var kallinn með svona bursta undir hendinni sem hann notaði til að þrýfa svo á sér muninn, svo fórum við á svona teppi sem þau biðja á, skildi ekkert sem hann sagði þar sem hann talaði bara svissnensku, enn kennararnir eru stundum sljóir að tala þýskuna, og ég hélt alltaf á Íslandi að við myndum læra háþýsku enn það er ekkert háþýska sko, miklu meira skrifþýska, sem við köllum hér í Sviss, því háþýskan hljómar allt öðruvísi enn málið er svo að fara til norður þýskalands eftir MA og ná eins góðri háþýsku og Angela Merkel kanslari Þýskalands talar.. Surprised Svo finnst mér líka skrítið eins og í MA við lærum bara einhverja málfræði enn getum í raun ekkert tjáð okkur, á Íslandi sökkar eignilega bara tungumálakennsla nema við erum góð í ensku, líka því allt sjónvarpsefni er ekki talsett.. það er tildæmis hræðilegt að sjá Despó á háþýsku..!! haha.. Jhá ég kann samt alltaf orðið meira og meira í Svissnensku, skildi t.d bekkjasystur mínar um daginn og þær voru svo hissa og ánægðar haha..!! Annars eru Svissnenskar stelpur þær ljúfustu sem ég þekki, hef aldrei kynnst svona ljúfum stelpum í lífi mínu, Svissara hugsa líka fyrst um hinn aðilan og síðast um sig, það er bara ekta Svissfólk.!! 
Enn ég ættla ekki að hafa bloggið lengra að sinni, ættla nefnilega að taka út pening og skreppa núna ein til Zurich og klára af þessar jólagjafir og senda heim til Íslands..!! 

p.s ég var svaklaega ánægð með kommentafjöldan seinast, leyst vel á þetta svona.. :D takk fyrir bara.. vil sjá þetta aftur..
                           kv. Jenný í jólaundirbúningnumInnocent 

Eftir Rigningu kemur Sól!Jenný Svansdóttir

Ég lofaði víst að vera duglegri að blogga, finnst sjálfri að ég sé að taka mig á hérna, en allavegna þá fór ég og keypti mér slatta af jólakortum í gær, já Jenný ættlar að vera bara búinn snemma í ár enda þarf ég líka að senda svo mikið af pökkum þetta árið og kortum svo ég ákvað bara að byrja á þessu. Það gerist líka mjög oft fyrir mig að ég er hreinlega farin úr öllum jólagír fyrir aðfangadagskvöld.! Enn þetta verða mjög öðruvísi að hafa jól hérna sko, samt bara gaman að prófa eitthvað nýtt.!
Ég á allvegna eftir að gera svo margt fyrir jólin, verð að viðurkenna að ég er búinn að eiga smá erfiðan tíma núna í lok Október og byrjun Nóvember enn það eru núna komnir bjartari dagar og svo á maður svo góða að, hún Súsanna stóra frænka mín var svo indæl að bjóða mér í heimsókn til sín, enn hún býr í Milano á Ítalíu og ég verð að segja þar sem ég er mjög mikil áhugamanneskja um tísku þá gladdi þetta mitt litla hjarta mitt ekkert smá og svo ákvað Nanna líka að kikka sömu helgina svo ekki get ég kvartað, bíð bara spennt núna, hélt að AFS myndi gera eitthvað vesen úr þessu enn svo hringdi host mamma mín til Zurich og þau sögðu að þetta væri bara ekkert mál, svo ég þarf ekki að fara þetta með einhverri leynd, AFS hérna í Sviss er svo frábært, fékk mér t.d í seinustu viku kampavínsglas á fundinum sem Nick hélt með öðrum afsurum og að sjálfsögðu borgaði AFS, á Íslandi er það víst bara bónusbrauðCool Svo er Kara að koma til mín eftir mánuð, ættla að fara með hana á einhverja sæta jólamarkaði eða Weinachtmarkt, við erum að tala um það að það tók mig heila 3 daga að læra að segja jól á þýsku, enn ég fékk svo rosalegt hrós í gær, umsjónakennarinn minn lét mig vera með einhverja Íslandskynningu, sýndi krökkunum krónuna okkar sem er ekkert í dag og gaf þeim Íslenska fána og í lokinn sagði Peter að þýskan mín væri alltaf betri og betri, já enn og aftur var mitt litla hjarta svo glatt!! fór heim úr skólanum með bros á vör!! Sýndi þeim líka vefmyndavélina frá Dalvík, semsagt Dalvík í beinni, augun þeirra stækkuðu ekkert smá ég bara ja ich weiss, sehr kein!! svo sá ég líka allann snjóinn, var eimitt að hugsa um það að mér finnst haustið hafa verið svo langt hérna í Sviss, allveg síðan í mið Sept og á Íslandi er það svona 3 vikur, og veturinn kemur, enn hér er ekki veturinn ennþá kominn, fengum einn dag með snjó og svo bara 18 gráður ...
Annars lendi ég allveg ennþá í misskilningi sko, það var t.d 2x í seinustu viku gleymt að segja mér að við værum í íþróttum annarstaðar og ég notturlega + það meira utan við mig, beið bara í búningsklefanum og skyldi ekkert sko, enn svo líka í gær þurfti ég ekki að mæta í þýskutíma svo ég svaf klukkutíma lengur og nei ég ættlaði að taka lest til Wettingen enn nei nei ég var bara á leiðinni til Zurich. náði að skipta um lest i Baden enn kom of seint i tímann, kennarinn bara hló af mér..Undecided 
Á fimmtudagsmorgninum var ég að labba út af bílaplaninu mínu kemur þá ekki bara þessi stóra röð af hermönnum, ég stífnaði fyrst smá upp af hræðslu enn svo labbaði ég bara samferða þeim út götuna mín, verð að segja þetta er eitt það svalasta sem ég hef lent í um ævidagana, svo bara vinkuðu þeir mér bæ ;)
Þetta er bara eins og ævintyri stundum svo vaknaði ég sveitt einn daginn hérna þá var mig semsagt að dreyma að ég væri heima á Dalvík og ég hefði bara verið í Sviss í 2 mánuði og ég grenjaði bara á mömmu og vildi fara aftur til Sviss og þegar ég vaknaði upp frá þessu rugli þá áttaði ég mig algjörlega á því að ég vill vera hérna í Sviss, það er bara skrítið þegar maður á svona smá erfiða daga í skólanum eða bara hérna þá þarf svo lítið til að gleðja mann eitthvað!! 
Mér finnst ég svo líka endilega þurfa að segja frá því að ég er byrjuð á uppkasti af smásögu eftir mig, ættlaði að vera búinn fyrir jól enn ég meina eru góðir rithöfundar ekki svona 3 ár með eina skruddu svo ég ákvað bara einn góðan dag að það væri kannski smá sniðugt að gera einhverja sögu, allvegna er ég byrjuð á uppkastinu, kannski gef ég hana út til vina minni, enn hún er mjög dramatísk.! Enda hugsa ég allann daginn í skólanum og er kominn með skipulaggsæði, held ég sé veik, keypti mér líka eldrauða dagbók um daginn að hætti Brillu jóns, það verður nefnilega nýtt ár nýr lífstíll árið 2009 takk fyrir Laughing Ég finn það á mér að 2009 verður mjög fínt ár, vona allvegna að þessi nefkláði sem ég er búinn að vera með og ég hnerra svona 4x á dag og er með svo mikinn kláða og augun mín stundum útgrenjuð að hann fari, held að þetta sé það sama og Kara var með í skólanum í fyrra þegar ég settist við hliðina á henni, örugglega fráfalseinkenni frá henni, allvegna þá fer hann vonandi í næstamánuði.. 
Ég veit að þetta er frekar þunnt blogg enn það næsta mun sko verða um Milano ferðina mína og þá skelli ég inn fullt af myndum af okkur frænkunum:D 
Ég kveð þá í bili full af Milano spenningi og þá erum við líka að tala um að ég verð ekki búinn að sjá Íslending í heila þrjá mánuði svo greyjið Nanna og Súsanna!! ég mun knúsa og þær og kreista!! 
Jenný Svansdóttir

p.s endilega allir að commennta, líka bara einhver Jón og Gunna úti í bæ ;) langar að sjá hverjir kikka í heimasókn á síðuna mína !!

Kreppuna þekki ég ekki enn!Jenný Svansdóttir

Þegar ég vaknaði í morgun heyrði ég að mér fannst eitthvað kunnuglegt hljóð, ég hélt hreynlegast að ég væri heima á Dalvík og Kolbrún eða Tara væri að mjálma eitthvað, enn þegar ég rankaði betur við mér var þetta bara Petöffi að skæla, enda er þessi köttur alltaf svangur og kemur alltaf til mín og vill fá mat.. Enn þetta er frekar einkennilegt ég held oft að á morgnanna að ég sé bara heima á Dalvík nema hvað að rúmið mitt heima er svona 1000x betra og ég sakna þess sárt.!
Núna á þessum sólahring var meginland Evrópu að breyta tímanum svo núna erum við hér bara 1 klst á undan Íslandinu, og mér finnst það miklu betra þá er auðveldara að tala heim!! Enn í vikunni sá ég mömmu og pabba á Skype og ég fékk bara tárin í augun, enda hef ég ekki séð þau í meira enn tvo mánuði.. og heldur ekki hitt neinn íslending á meðan..!!
Annars fæ ég stundum að hitta Nick trúnaðarmanninn minn og þá tölvum við mestallann tíman íslensku nema þegar hann pínir mig til að tala þýskunaWink En í gær fórum við saman til Zermatt og hittum svo fullt af öðru fólki og meðal annars 3 dani, sem í lokin voru að reyna að tala dönsku við mig og ég get svo svarið það að ég bara skyldi þau enn ég fann það að þegar ég ættlaði að reyna að svara þeim komu alltaf upp þýsk orð í hugann minn, svo þýskan á hug minn allann núna.Smile
Þetta var allveg geggjuð ferð, ég klæddi mig notturlega ótrúlega vel, var í -20°C norska gallanum mínum og cintamani dúnúlpuni minni og hélt gjörsamlega að ég myndi andast þarna!! enn Nick gjörsamlega píndi mig áfram upp fjallið eða að Matterhorninu og þetta var ekkert smá falleg sjón og við vorum meira enn 7 klst í þessari göngu svo ég held bara að ég sé kominn í smá fjallgöngu pásu, enda keypti ég mér ræktarkort fyrir peninginn sem amma gaf mér í afmælisgjöf og er rétt svo byrjuð.. Fann það líka á föstudaginn hvað ég hefði saknað þess að fara í ræktina eftir skóla, enn hér hef ég svosem ekkert mikið heimanám svo fer ég bara í ræktina eftir skóla, enda er ég oftast bara búinn kl 3 nema á þriðjudögum kl hálf 11 og kl 5 á miðvikudögum og alltaf með fullt af eyðum, og svo þegar þau taka próf mæti ég ekki nema kannski í ensku, enn ég fór í ensku próf 3 daginn minn í skólanum og hafði svosem enga hugmynd um hvað prófið sjálft snérist enn hér gefa þau einkannir frá 1-6 og ég fékk 5 á enksuprófinu sem flokkast undir 8-9 á íslCool og kennarin skrifaði flott hjá þér og eitthvað svo ég var bara rosalega ánægð, svo líka héldu bekkjasytkini min að á Íslandi væri tölvuð enska, því þeim fannst enskan mín svo fullkominn fyrstu daganna, og svo sagði ég þeim að enska væri nú ekki móðurmál mitt heldur íslenska og þá fékk ég fullt af spurningum, eins og hvað væri ljótasta orðið og ég sagði bara Drullutussa og núna eru allir að segja við hvort annað í bekknum mínum Drullutussa og ég harma það í dag að hafa kennt þeim þetta ljótyrðiInnocent Bekkjarsystkinin mín eru samt rosalega fín, alltaf að bjóða mér með í party og svona, enn þau tala nú nánast enga ensku við mig og ef ég svara þeim á ensku þá segja þau alltaf; Nei Jenný við skyljum ekki, þú verður að segja á þýsku! svo ég þarf virkilega alltaf að reyna, og stundum skil ég sjálf ekkert hvað ég er að segja og mér líður mesta allann tímann eins og hálfvita,!! 
Ég átti afmæli um daginn eins og kannski eða vonandi fólk veit, ég hafði það nú samt bara rólegt! Enda vissi ég bara að bankakerfið á Íslandi væri sprungið og allt væri í einhverju rugli svo ég fann ekki allveg löngunina til þess að fagna á þessum tímapunkti og kæru landsmenn ég verð að segja að ég er bara feginn að vera hérna sérstaklega þegar Sólborg frækna sagði mér að búðirnar heima væri meira að segja hættar að fá inn ný föt og annað, svo kannksi ég taki það bara að mér hér og nú að fara að versla fyrir fólk heima á Íslandi ný föt og þjéna smávegis af aurum! Enn ég fæ ætíð oft núna spurningar um íslanska bankakerfið og ég segi bara isss..!! enda hef ég ekkert verið heima yfir þessum hörmungum svo kreppuna þekki ég ekki enn!! Enn helgina eftir ákvað ég nú samt að gera eitthvað í mínum málum og eldaði mexiko súpu fyrir nokkra félaga og sérstaklega þótti mömmu minni og vinkonu hennar súpan allveg æðisleg, enda er það ótrúlegt hvað hún er alltaf til mikillar lukku!! Svo fór ég með Allison vinkonu minni frá USA til Zurich á djammið og svo skemmtilegt atvik átti sér eimitt stað þegar ég Jenný Svansdóttir var nú ný kominn úr minni fyrstu áfengisferð og við Allison að sötra þarna á lestarstöðinni þá misheyrðum við að lestinn hefði skipt um gleis (braut), svo við stukkum upp í aðra lest sem við sáum að væri að koma og við sitjum þarna og allt í einu byrja ljósin að slökkna og við alveg skíthræddar, hlaupum út og rétt náðum að komast út áður enn lestinni hefði verið læst..! haha við gátum ekki hætt að hlægja, ekkert smá góðar í þýskunniUndecided Svo fórum við til Zurich og enduðum á einhverjum x-tra club sem var svona 4x Sjallinn, allveg geggjað og svona þýsk gömul tónlist var aðal málið þetta kvöldið mjög spez enn svo var líka hægt að fara í svona salsa eitthvað og líka svona meira eitthvað nýtt í öðrum sölum..!! Ég líka fann uppáhalds áfengið mitt sem heitir EVE, svona stelpubjór ekkert smá gott, allveg uppáhaldið mitt.. vona að þetta verði til á Íslandi einhvertímann, kannski bara eftir kreppuna!! 
Ég og mamma mín skruppum seinustu vikuna mín fyrir skóla start í IKEA, ég verð að segja mér leið smá eins og ég væri kominn heim enn þegar við löbbuðum út úr búðinni fékk ég svona smá depurð yfir mig, vildi bara vera í IKEA, annars keypti mamma mín svona flotta seríu handa mér og svona hálfgert veggfóður eða svona blóm sem maður raðar á vegginn bara eins og manni finnst flott, og þar sem herbergið mitt var frekar tómlegt þá kom listaverkið mitt bara rosalega vel út!! Enn ég er nú þegar byrjuð að sanka að mér helling af drasli og þarf örugglega að senda fullt í kössum heim!! 
Ég fór líka seinustu frí vikuna mína til Bern höfuðborgarinnar, það var allveg æðisleg ferð. Mamma mín náði að pína mig upp einhvern kirkjuturn, hélt ég myndi deyja úr innilokunarkennd og lofthræðslu enn ég sá sko ekki eftir því að hafa farið upp þegar ég sá útsýnið yfir borgina, svo sá ég líka krúttlega skógarbjörnin, enn hann er já lifandi og Bern hefur haft hann sem merki borgarninnar og kantónunar og alltaf hefur verið skógarbjörn í reyndar ólöglega litlu búri í borginni, þar sem allir geta bara séð hann og gefið honum epli og eitthvað! 
Ég skrapp svo í meira enn 20 KM göngu um Svartaskóg í Þýskalandi, og ég hálfvitinn henti óvart öllum myndunum frá Þýskalandinu, landinu sem ég gjörsamlega dýrka út af lífinu, mér fannst þetta allveg geggjuð ferð og ég verð samt að segja að labba meira enn 20 km er dauðinn!! enn ég held að allar þessar fjallgöngur hérna hafa bara styrkt mig og þessi vellíðan eftirá er svo góð og ég er bara hálf háð henni, þessvegna finnst mér ótrúlega gaman þó það sé smá erfitt að fara í allskonar fjallgöngurLaughing Svisslendingar eru líka óðir þegar kemur að svona fjallgöngum þeir eru allstaðar í einhverri útrás og hérna sé ég varla svona feit fólk eins og heima á Íslandi og heldur ekki svona rosalega massað fólk eins og heima, hér er fólk meira bara svona í miðjunni, enn allt er komið út í svo miklar öfgar heima! og Ísland er miklu meira Ameríka heldur enn Evrópa!! Svo segir mamma mín hér að það sé fullt af feitu fólki í Sviss, ég bara sagði við hana bíddu bara þangað til þú kemur til Íslands þá sérðu hvað allt er öfgafullt þar, allavegna þegar Ísland er borið saman við Sviss eða meginland Evrópu.. Hér er heldur ekki svona TAN æði eins og heima, svo ég greyjið fæ tanorexiunni minni ekkert fullnægt hérna enda sakna ég brúnkuklefanns ekkert smá mikið og ég hef heldur aldrei séð fake bake hérna.. Surprised ég flokka það kannski ekkert undir menningarsjokk heldur frekar sé ég bara hvað Íslendingar eru allt of snobbaðir miða við að við höfum ekkert efni á að láta svona, og fullkomnunaráráttan er að drepa suma!! Ég vona þess vegna bara að kreppann fái fólk til að hugsa skynsamlega, það snýsta ekkert allt um að vera massaður í rusl og tanaður í drasl!! Fólk líka veit nákvæmlega 0 um Ísland.. Enn ég hef samt líka tekið eftir því hjá sjálfri mér hvað mér þykir óendanlega vænt um Ísland og hvað það er gott að ferðast bara heima, enda ótrúlega margt fallegt að sjá sem maður tekur bara sem sjálfsögðum hlut!! Enn hérna eins og þið sjáið hef ég óendanlega mikinn tíma til þess að hugsa, ég hugsa og hugsa. Þá kannski kemur maður bara úthugsuð heim, þroskaðari og meðvitaðari um hversdagslegu hlutina..!!! 
Bloggfærslan mín er enn og aftur orðinn svo löng að það nennir örugglega enginn að lesa þetta, enn ég lofa hér með að blogga ekki bara mánaðarlega, heldur mun sovna 2-3x í mánuði!! Svo reyni ég að vera dugleg að senda bréf og svona og sjálfri finnst mér alltaf rosalega gaman að fá handskrifuð bréf enda á ég þau öll og ættla að eiga þau alla mína ævi með dagbókafærslunum mínumSmile Það er líka ótrúlega gott þegar menni leyðist eða er dapur að lesa gott bréf aftur yfir þá hressist ég öll og ég er ennþá bara svona að reyna að ná því að ég verði hérna í allann vetur því stundum finnst mér tíminn heila elífð að líða enn stundum flýgur þetta svona hratt og ég hef verið hérna í Sviss í meira enn 2 mánuði og líka bara vel allavegna þar sem komið er og ég á eftir að ferðast fullt á næstunni enn ég mun bara blogga um það síðar.. 
Annars sakna ég auðvitað allara og þannig enn það má segja að það sé bara stutt þangað til að ég kem heimTongue out í kreppuna, enn ég er allvegna ekki nærðum því tilbúinn fyrir hana strax og nýt þess bara að vera að gera það sem mig hefur alltaf langað til og hér hef ég líka fengið fullt af tækifærum sem mér býðst kannksi ekkert á næstunni.. 

Enn blogga aftur fljótlega og ég vill hér í lokinn tileinka lag til Evu Maríu minnar í Pennsó, enn okkur er ekki ættlaða að tala saman.. lagið er með Kid Rock og heitir All Summer Long, þetta er kannski ekkert Evu lag enn ég er með það á ipodnum mínum og það minnir mig alltaf á hana!!


Koss og knús og ástarkveðjur Jenný
p.s Ættlaði að skitpa út myndum enn það er eitthvað að síðunni svo ég geri það eins fljótt og bloggar.is er komið í lag. (enn er svo að vinna í myndasíðunni minni)
 

Ausflug, Ausflug und AusflugJenný Svansdóttir

Ég er ekki frá því að bloggsíða mín springi bara núna ég hef frá svo rosalega miklu að segja hérGlottandi
Allavegna var ég að koma frá AFS skiptinemafundi sem var bara rosalega fínt og gaman að hitta nýja skiptinema líka og ótrúlegt hvað sumir hafa náð þýskunni fljótt.. ein stelpa bara gat ekki talað ensku við mig, enn það var svosem allt í lagi þar sem ég skil þýskuna sjálf orðið alltaf betur og betur og á stundum erfitt með að hugsa orð á íslensku og svo þegar ég tala ensku þarf ég ekki ennþá að hugsa svo mig hefur líka farið fram í henni enn mamma mín er líka búinn að vera að hrósa mér og bróðir minn er alltaf rosalega ánægður ef ég segi bara eitthvað á þýskuSvalur
Annars þá vil ég ekkert vera að monta mig en ég skrapp til Ítalíu á miðvikudaginn og það var GEÐVEIKT, fór semsagt á mánudags morgninum með vinafólki mömmu minnar í ítalíuhluta Sviss sem mér finnst ekkert Svisslegur, því maður fer í gegnum göng sem er einhverjar 20 mín í lest í gegnum alpana og þegar maður kemur hinumeginn bara byrjar lestakonann að tala ítölsku og húsin þvílíkt öðruvísi!! Það var allveg geggjað veður fyrsta daginn í Lugarno svona 20°C+ og við bara löbbuðum um svo næstadag fórum við í fjallgöngu, ég er svo að elska þessar fjallgöngur, og við ættluðum að fara upp á einn tindinn sem var +3 tímar sem er á landamærum Sviss og Ítalíu enn Ursina var hálflasinn svo við hættum við, enn í fjallgönguni var veitingastaður sem við fórum á og það var þessi maður sem heyrði til mín að ég væri frá ÍSL og hann koma bara vá eitthvað ég var á íslandi (man ek hvenær) og þvílíkt dásamaði landi og þjóð.. Svo vöknuðum við eldsnemma á miðvikudagsmorgninumm og fórum til Ítalíu, vá vá vá, ég elska þetta land ættla svo aftur þangað áður enn ég fer heim, við semsagt fórum á þennann stór túristamarkað sem var geggjað, og auðvitað verslaði Jenný hvað annað, keypti mér 3 töskur, tvær LV og ein Fendi (held það) og svo veski, silkiklút YSL, sólgleraugu, 2x úr, og einhverja ponsjopeysu hálfgerða! allt frekar ódýrt. fólkið á markaðnum var svakalega hresst og svo mikið af fallegum og myndarlegum mönnum á Ítalíu, að manni er bara illt í augunum!! En svo sátum við bara í hitanum og svo tókum við ferju yfir vatnið og ég fékk mér pizzu á ítalíu (að sjálfsögðu) svo löbbuðum við um þessa gömlu fallegu bæji, og á leiðini til Lugarno var skipstjórinn bara að spyrja mig þegar ég kom um borð, bíddu hvaðan ert þú og eitthvað ég bara Ich komme aus Island, hann; Ja Reykjavík? ég bara neimms og svo bauð hann mér að koma upp í brú og prófa skipstjórahúfuna sína og Ursinu líka og svo fékk ég að stýra ferjunni, tók smá krókHlæjandi og svo sagði hann í kallkerfið, ja hérna er miss iceland.. haha við Ursina gátum ekki hætt að hlægja af því hvað þeim leiddist mikið, enn við höfðum svosem gaman af þeim!! Enn svo fórum við í aðra fjallgöngu um dalinn og sá svo mikið af fallegum uppgerðum steinahúsum þarna, sem fólk notar sem sumarhús..!!
Ég var svo í heimsókn hjá ömmu minni og afa í Solothurn sem er rosalega fallegur bær með gömlum rómönskum hluta, frekar ítalskt heldur enn Sviss, svo gisti ég eina nótt hjá þeim og um morguninn fór ég svo með þeim til Appenzell sem er allveg í austur, fór þar og sá mjög skemmtilegan atburð; bændurnir að koma með kýrnar sínar og geitur niður fjallið og í outfittinu sínu sko við erum að tala um gular leðurbuxur, síður eyrnalokkur og læti!! svo voru kýrnar með HUGE bjöllu sem er stærri enn hausinn á þeim og ég veit ekki hvað þungt enn svo stóð ég þarna og þeir voru saman í hóp og byrjuðu að sjálfsögðu bara á júllójóllinu, allgjör snilldGlottandi Svo var allt sveitafólkið saman og æjih þetta var svo flott mér bara leið eins og að ég væri í einhverju ævintýri þarna, svo komu krakkarnir með hvítu geiturnar, og fyrst þegar ég kom þarna var ég í smá sjokki þar sem allt niður í 10 ára gamlir krakkar voru að reykja sigó þarna, já það er semsagt leyfilegt í þessari kantónu á þessum degi.. haha!! Svo keyrði ég um með gamla settinu sem er shit sko þau eru nú erfið, ammann er svo hrokafull við afa minn hérna, og hún heldur alltaf að hún hafi rétt fyrir sér og t.d ættlaði gamli maðurinn nú að láta mig hafa penna því ég vildi gera sudoku nei nei ég endaði með 3 penna því gamla kellinginn gat ekki sætt sig við það að hann hefði rétt mér pennann.. ótrúlegt svo buðu þau mér endilega aftur í heimsókn og heilinn á mér sagði bara NEI, enda var ég dauðþreytt á þeim þegar ég mætti heim,, haha enn samt sýndu þau mér margt áhugavert Hlæjandi
Fyrstu frívikuna mína fór ég svo með Valeriu vinkonu minni, ömmu minni og afa og mömmu minni í svokallaða 5 vatna fjallgönguna og við fórum með lest svo fórum við upp með 3 stólalyftum og svo lemtum við bara í snjó og elsku Valeria mín sem er frá Ecuvador sá og snerti snjó ó fyrsta sinn, og var mjög hrædd að labba í snjónum, enn þetta ar 5 tíma ganga og ótrúlega skemmtileg, svona upp og niður allann tímann og mjög falleg útsýni og ég sá meðal annars til Austurríkis og Lichtenstein!! Ég fór svo mína hæðstu hæð hingað til eða gekk á tindinn Pizol sem er 2505 m hæð yfir sjávarmáli, enn stefnann er svo tekinn á Jungfrau einhvertímann í vetur, enn það er um 4000 m hæð! ég líka höndlaði þessa gullfallegu gönguskó, svo einsgott að maður noti þá í vetur enda er núna áhugamálið mitt númer 1 er fjallgöngur og svisslendingar eru brjálaðir í þessar fjallgöngur, maður mætir alleg helling af fólki á fjöllunum, svo hér með lýsi ég eftir fjallgöngu félaga!!!!
Mamma mín hérna er svo endalaust mikið æði hún er svo ástfanginn þessa daganna og er eimitt núna í Ítalíu með kærastanum, Thomas svo ég er ein heima um helgina enn þessi kall er rosalega fínn hann kom hérna í mat um daginn og Raphael kenndi okkur póker sem ég bæ the vei elska, og við fórum svo til hans í eitthvað grillparty með fullt af yndislegu eldra svissfólki sem kenndi mér þennann franska boltaleik (já ég sökkaði) og svo fékk ég auðvitað Schweiz Wurst (pylsa) rosalega ekki gott!! Svo tók mamma mín mig með á einhverja haustkomu, þar var allveg hellingur af eldri konum mættar hinumeginn við Bruggerberg og við dönsuðum saman haustdansa til að velkoma haustinu og taka það góða úr sumrinu með inn í haustið, þessar konur voru svo indælar og sumar knúsuðu mig bara og ég eignaðist eina 70 ára gamla vinkonu frá Þýskalandi sem bauð mér í heimsókn til sínBrosandi enn við áttum svo að labba inn í svona hólf eitthvað og það tók sinn tíma og svo létu þær reykelsi á mig og ég þurfti að halda á einhverju rósablaði og óska mér og ég gat ekki annað enn hugsað til ömmu Dúddu, þetta er svo eitthvað fyrir hana, sá hana allveg í anda þarna dansandi með okkur og með þetta reykelsi og skapa þessar hugsanir!! Svo eftir á borðuðum við graskerasúpu sem var rosalega góð og síðan eplaböku....!!
Í lokin á tungumálaskólanum fórum við gruppen saman til Basel á gamalt safn og svo annað safn og ég þarna aulinn ættlaði að lýta út fyrir að vera listanörd og skoða myndirnar nei nei fór ekki bara allt kerfið að bíbba á mig og kom þessi safnvörður og sagði eitthvað á svissnensku og ég skildi það þannig að ég mátti víst ekki standa svona nálægt þessu og svo er sagan nú ekki öll sögð því seinna kom svo til mín safnvörðu og bað mig um að passa að sveifla ekki myndavélinni minni svona !! mjög skrítið enn svo um kvöldið fór ég með Allison vinkonu minni frá USA á djammið í Aarau og við hittum hina skiptinemana, byrjuðum á einvherju Penny bar og enduðum á hip hop club, haha!!
Svo lífið hérna í Sviss er svakalega ljúft og mér líður rosaleg vel og finnst bara ég eiga heima hérna núna og ég væri aldrei tilbúinn til þess að koma heim bara t.d um jólinn, tíminn gjörsamlega flýgur áfram og fyrir þá sem héldu að ég myndi ekki lifa af fysta mánuðinn þá geta þeir farið að hugsa aðeinns lengra, því ég er allveg að elska Sviss út af lífinu og langar ekkert heim á næstunni, ég er líka alltaf að finna meira og meira gott við þetta land.. haha t.d er múslí frá Sviss enda borða ég það alltaf í hádegismat núna, það var víst einhver læknir í Zurich sem fann upp á því árið 1700 og súrkál!! Enn í sambandi við matinn þá fer það nú skánandi, herinn er orðinn eðlilegur fyrir mér að sjá hermann með byssuna sína í lestinni, enn reyndar dreymdi mig um daginn world war III á Íslandi og pabbi var alltaf að reyna að finna hvar hermenn myndu koma á einherjum sjókortum og stóra vandamálið var að við höfðum engann her!!og svo hef ég fundið minn skokkhring enn ég fer nokkrusinnium í viku út að skokka meðfram Arau (ánni) svona aðeinns til að vera fit annars sögðu vinafólk mömmu minnar um daginn við mig; Jenný du bist FIT Óákveðinn veit ekki allveg um það!!
Það er vika þangað til ég byrja í kantónuskólanum mínum í Wettingen og þá vonandi fer þýskan mín meira af stað! og ég er semsagt að fara til Þýskalands að skoða Svartaskóg og labba um með mömmu minni og Heidi vinkonu hennar (elska að hún heiti Heidi) á mánudaginn, ég er allveg svakalega spennt fyrir því, líka bara að fara til Þýskalands, hefur alltaf verið minn draumur, enda áhugamenneskja um land og þjóð..! Svo förum við líka í næstu viku að skoða Matterhorn (Tobleron fjallið) enn mamma mín hefur ekki einu sinni séð það svo við verðum báðar á kemerunni allann tímann..!! Svo ég er búinn að ferðast rosalega mikið, algjörlega krossa Sviss og svo Ítalía og Þýskaland og allt áður enn ég verð 18 ára... enn ég ættla svo að bjóða félögum mínum hérna í mexico súpu og eitthvað á föstudaginn svo er málið að skreppa út á afmælisdaginnGlottandi hef samt ekkert planað afmælið mitt hérna..!!

enn ég er orðinn dauðþreytt núna, og er stundum eins og ungabarn, því helinn þarf að vinna svo mikið á daginn í öllu þessu tungumálaflakki!! svo ég segi bara góða nótt og hafið það gott elskurnar mínar.. 

Jenný Svansdóttir talsmaður frá Sviss, kantónu Aargau, Brugg Svalur

p.s skipti út myndum, nýjar komnar inn !!

Undirsíðukubbur

Auglýsing

Klukkan

Innskráningar kubbur

Dvöl mín í Sviss

Belgó baby

Prófíll

  • Nafn: Jenný Svansdóttir
  • Netfang: 26jes@ma.is
  • Staður: Brugg
  • Heimilisfang: Schutzenmatt 22
  • Um mig: Ég er ung stúlka stödd ein út í þessum stóra heimi, full af lífshamingju og forvitni!

Willkommen

Velkominn á síðuna mína, endilega skrifði í gestabókina/skoðanir..